
Leiksilki er unnið úr 100% silki og fæst í mörgum fallegum litum.
Börn nota leiksilki á margan hátt og eru eingöngu bundin af eigin ímyndunarafli. Sum börn nota silkið sem vatn og láta báta sigla á því, sem eld undir potta, sem skikkju þegar þau eru ofurhetjur, sem skuplu eða strekkja silkið milli tveggja stóla og búa þannig til töfrandi himin.
Stærð: 54 x 54 cm
Af hverju elska börn leiksilki?
- Það nýtist í opinn leik - þar sem hugmyndaflugið fær lausan tauminn
- Áferðin er mjúk og þægileg
Með því að gefa barni leiksilki örvar þú hugmyndaflug þeirra og hjálpar þeim að skapa sinn eiginn heim.