Þessir einföldu naghringir eru gerðir úr gegnheilum amerískum hlyn sem ekki flísast úr og með lítið leiksilki hnýtt á hringinn. Ekkert lím eða lakk er notað.
Regnboganaghringirnir eru 8 cm í þvermál og regnbogasilkið sem er hnýtt á er 54 x 54 cm.
Ungabörn njóta þess að þreifa á hlutum með mismunandi áferð og geta því unað sér lengi við að naga viðarhringinn og svo leika sér með mjúkt silkið.
Naghringirnir eru framleiddir í samræmi við staðla CPSIA og eru CE merktir.
Til að hreinsa naghringinn, fjarlægið fyrst silkið af hringnum. Silkið á að handþvo með mildu sjampói eða uppþvottalegi í volgu vatni. Hengið til þerris og strauið á millihita til að framkalla glansáferðina á ný. Hringinn sjálfan skal hreinsa með bakteríudrepandi sápu, klút og volgu vatni.